Frón, Rósa og Hlemmur – Krista Design

Krista Design framleiðir margs konar gjafavöru sem meðal annars er unnin er úr endurunnum hjólbörðum frá Gúmmívinnslunni hf.
Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur enduvinnsla á gúmmíi.
Strax var farið að endurvinna vörubílahjólbarða með sólningu. Við sólninguna fellur til gúmmí sem notað er til framleiðslu á hverskyns nytjahlutum svo sem öryggishellum, mottum, millibobbingum fyrir fiskitroll, plöttum og fleiru.
Með þessari endurvinnslu er stuðlað að verndun umhverfisins og þróun á arðbærri framleiðslu úr hráefnum sem að öðrum kosti yrðu ekki notuð.
Eins er boðið upp á stórt úrval af skartgripum úr roði, leðri og áli.
Vefur: www.kristadesign.is
Facebook síða
Vörurnar fást m.a. á (ath mismunandi vöruúrval):
EPAL, Skeifunni 6 – Hitaplattar
Sirka, Skipagötu 5 Akureyri
Myrin, Kringlunni
Hrím-hönnunarhús, Akureyri
Minjasafn Austurlands
Mosi- Laugavegi
Hús Handanna, Egilsstöðum
Bílasalan Geysir, Reykjanesbær
Víkin Sjóminjasafn
Gjafavara, Iðnaður, Nytjahlutir // 19/07/2010
Fafu toys
Eitthvað annað er vefur um íslenska hönnun og framleiðslu sem er markaðssett til einstaklinga, og sýnir mikinn fjölbreytileika í þeim iðnaði. Íslensk fyrirtæki eru mjög dugleg við að vinna með íslenskt hráefni og bjarga sér í landi sem er frekar snautt af framleiðsluhefðum og iðnaðartækjum. En sökum þessa hafa mörg fyrirtæki einnig þurft að leita út fyrir landssteinana með framleiðsluna til að ná að framleiða vöruna á hagkvæman hátt. Eitt af þeim er sprotafyrirtækið Fafu toys.
Í stað þess að leiða það hjá okkur, af þeirri ástæðu að framleiðslan er ekki hér á landi, langar okkur að spyrja þau nokkurra spurninga um fyrirtækið, vörurnar og framleiðsluna og beina sjónum okkar sérstaklega að því af hverju er ekki hægt að framleiða vörurnar hér á landi?
Viðtöl // 18/02/2010
Litlu búðirnar

“Markmiðið með Litlu búðunum er að selja íslenskt handverk. Hugmyndafræðin er einföld. Um allt land búa handverksmenn sem framleiða frábærar vörur. Daglega er þetta sama fólk yfirleitt að sinna búskap eða vinnur fullan vinnudag við allt milli himins og jarðar. Víða er verið að framleiða afar góðar vörur úr náttúrulegum efnum sem oft vaxa eða eru fengin í næsta nágrenni. Flutningskostnaður á hráefnum er yfirleitt í lágmarki.”
“Áhugi fólks á heimaunnum vörum og alþýðulist fer stigvaxandi. Það vill fá hluti sem eru unnir af alúð og án aukaefna. Það vill stuðla að framleiðslu vara sem krefjast ekki hráefna sem eru flutt heimshorna á milli með tilheyrandi mengun og orkusóun.”
Litlu búðirnar er hugarsmíð Áskels Þórissonar, starfsmanns Landbúnaðarháskóla Íslands. Litlu búðirnar er tilraun sem Vaxtarsamningur Vesturlands var svo framsýnn að styrkja og inniheldur nú á annan tug vöruflokka og ótal vörur bæði þjóðlegar og framúrstefnulegar, sem eru framleiddar um allt land, sjón er sögu ríkari!
Fatnaður, Gjafavara, Matvara, Nytjahlutir, Snyrtivörur, Tækifæri // 16/02/2010
Sápan

Sápan, sápugerð framleiðir ýmsar tegundir af sápum og nota til þess ýmislegt hráefni úr íslensku náttúrunni, s.s. íslenska birkið. Meðal annars má fá kókossápu, ólífusápu, tólgarsápu og sérstakar jólasápur. Einnig má nefna sápur kenndar við ýmsa garpa úr Íslendingasögunum; Gunnar á Hlíðarenda, Hallgerði langbrók og Gretti sterka.
Hjá sápunni er einnig hægt að fara á námskeið í sápugerð þar sem greint er frá helstu efnum, áhöldum og aðferðum í sápugerð og hver og einn býr svo til sína eigin sápu.
Sápan fæst víða á netinu og í verslunum, kíkið á lista yfir söluaðila.
Tenglar: www.sapan.is
Snyrtivörur // 15/02/2010
MÝR design

Mýr hönnunar, lista og handverksteymið eru þær systur Helga Björg og Linda Steinþórsdætur.
Helga hefur mikinn áhuga á hönnun og handverki og hefur sérhæft sig á því sviði.
Linda er fjölmiðafræðingur hljóðmaður og listakona.
Helga hannar og framleiðir tískuvörur mestmegnis úr íslensku hráefni, leðri, fiskroði, skinni og íslenskri ull, meðal annars skartgripi, töskur, belti, hálskraga og fatnað úr ull.
Linda vinnur með sparsl tækni og notar akrýl liti og gel á striga, verk hennar eru minimalísk og vinnur hún að mestu leyti með litina hvítt, svart,
rautt og silfur. Linda hefur sýnt verk sín í Vínarborg, Linz og á Íslandi
Þær systur eru með Galleryið “Einfach” í Linz í Austurríki.
Tenglar: Facebook
Vefsíða: http://myr.blog.is/blog/myr/
Fatnaður // 05/02/2010
Audio puzzle

Audiopuzzle er annar leikurinn frá íslenska leikjafyrirtækinu Dexoris, sem áður gerði leikinn Peter und Vlad. Báðir þessir leikir eru fyrir iPhone og iPod touch frá Apple og er hægt að kaupa í iTunes versluninni. Í byrjun ársins 2010 var Audiopuzzle mest keypti leikurinn í iTunes UK og rétt fyrir áramótin komst leikurinn á “What’s hot?” listann í iTunes Japan. Leikurinn hefur einnig fengið mjög góða dóma og umfjöllun í helstu tímaritum sem tengjast þessum geira.
Leikurinn gengur út á að hlusta á lög og bera kennsl á þau í spilaranum þínum og púsla þeim saman. Mismunandi þyngdarflokkar eru í leiknum og grafíkin eins og hún gerist flottust.
Dexoris er tölvuleikjafyrirtæki í Reykjavík og er óskilgetið afkvæmi bankahrunsins. Það eru nokkrir félagar sem unnu saman hjá Landsbankanum og þegar þá vantaði verkefni fóru þeir að hugsa um það hvað þeim fannst skemmtilegast að gera og í hverju þeir væru bestir. Þannig fæddist þessi verðandi leikjarisi.
Iðnaður // 24/01/2010
Blik

Blik er lína af prjónaflíkum, hönnuð af Laufeyju Jónsdóttur. Laufey útskrifaðist frá fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands vorið 2007 og er Blik hennar fyrsta verk sem fer í framleiðslu og sölu. Línan er unnin fyrir Varma Design. Samtarfið hófst eftir samkeppni á vegum Hönnunarmiðstöðvarinnar og Útflutningsráðs, sem haldin var í febrúar 2009. Í október síðastliðnum hlaut Laufey svo styrk Hönnunarsjóðs Auroru til að halda áfram með verkefnið.
Þjóðsagan Þóruhólmi og sögusvið hennar, íslensk náttúra, var innblástur Laufeyjar við hönnun á Blik. „Jón hét maður Sigurðarson sem bjó eftir föður sinn á Dældarkoti, einni af Helgafellskirkjujörðum. Hann reri oft til fiskjar. Var það þá eitt sinn þegar hann sat að fiskidrætti fram við hólma einn skammt frá Súgandisey að svo bar við að hann dró konu upp eða mey gjafvaxta á öngli sínum sem hafði krækst undir belti hennar.“ (Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonar)
Blik fæst í versluninni Kraum við Ingólfstorg
Tenglar: varmadesign.is/blik
Facebook
Fatnaður // 24/01/2010
Fjallagrasa Schnapps

Fjallagrasasnafsinn er alkóhólseyði af fjallagrösum. Möluð grös eru látin liggja lengi í sérstakri spírablöndu, sem leysir upp og dregur í sig líffræðilega virk efni úr grösunum og gefa m.a. hinn sérstaka lit og bragð drykkjarins. Engum bragð- eða litarefnum er bætt í og er því fjallagrasasnafsinn einstök náttúruafurð, sem hefur verið framleiddur frá 1993. Í flöskunni eru heil fjallagrös sem bæta enn frekar virknina og eru til mikillar prýði um leið og þau undirstrika beiskt bragð grasanna. Einstakur snafs sem ber keim af íslenskri náttúru. Sannur víkingadrykkur. Alkóhólstyrkleiki 38%
Hráefnið í vörur okkar eru íslensk fjallagrös, sem eru handtínd á fjöllum og óbyggðum Íslands. Við gerum samninga við bændur og landeigendur víða um land, sem safna grösum, þurrka þau og hreinsa samkvæmt okkar leiðbeiningum og gæðaeftirliti áður en þau eru notuð í framleiðsluna.
Víngerðin ehf framleiðir Snafsinn og er hann seldur í Vínbúðinni í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi en að sjálfsögðu er hægt að leggja inn pöntun í öllum vínbúðum landsins.
Matvara // 24/01/2010
Krakkar að spretta

Krakkar að spretta er mælistika og myndverk í barnaherbergi.
Börn hafa oft mikinn áhuga á því að stækka og foreldrar eru líka áhugasamir um þroska barna sinna. Derek Mundell er maðurinn á bakvið verkið.
Málverkið var skannað inn í mikill upplausn og prentað á sterkt seglefni sem endist í áratugi. Hægt er að hengja plakatið upp með því að festa nagla nákvæmlega 203 sm frá gólfi. Plakatið er nákvæm eftirprentun af frummyndinni og virkar því einnig sem listaverk inn í barnaherbergið.
Auk þess er lítið mál að taka plakatið niður og flytja hvert sem er með sér og varðveita þannig mikilvægar minningar frá uppvexti barnanna.
Plakatið er tilvalið sem skírnargjöf, sængurgjöf, afmælisgjöf eða bara sem tækifærisgjöf og með því er hægt að fá handhæga gjafaöskju með gjafamiðum – sem sagt engin þörf á frekari innpökkun.
Hægt er að nálgast plakötin hjá Móðurást, Hamraborg 7, Kópavogi eða hjá listamanninum sjálfum derek@present-art.is
Gjafavara, Nytjahlutir // 16/01/2010
Stáss

Stáss hönnunarteymið eru Árný Þórarinsdóttir og Helga Guðrún Vilmundardóttir arkitektar. Samstarf þeirra hófst undir nafninu Stáss í október 2008.
Stássið er að miklum hluta innblásið af íslensku útsaumsmunstri sem er hluti af menningararfi Íslendinga allt frá 17. öld. Stáss leitast að því að upphefja íslenskt handverk og hefðir með því að finna þeim nýjan og öðruvísi farveg en áður.
Fæst í Sirku á Akureyri, Epal, Þjóðminjasafninu og Kraum.
Tengill: www.stass.is
Gjafavara, Nytjahlutir // 20/12/2009
