Inspired by Iceland

Fafu toys


Eitthvað annað er vefur um íslenska hönnun og framleiðslu sem er markaðssett til einstaklinga, og sýnir mikinn fjölbreytileika í þeim iðnaði. Íslensk fyrirtæki eru mjög dugleg við að vinna með íslenskt hráefni og bjarga sér í landi sem er frekar snautt af framleiðsluhefðum og iðnaðartækjum. En sökum þessa hafa mörg fyrirtæki einnig þurft að leita út fyrir landssteinana með framleiðsluna til að ná að framleiða vöruna á hagkvæman hátt. Eitt af þeim er sprotafyrirtækið Fafu toys.

Í stað þess að leiða það hjá okkur, af þeirri ástæðu að framleiðslan er ekki hér á landi, langar okkur að spyrja þau nokkurra spurninga um fyrirtækið, vörurnar og framleiðsluna og beina sjónum okkar sérstaklega að því af hverju er ekki hægt að framleiða vörurnar hér á landi?

Fafu toys er lítið fyrirtæki í Elliðaárdalnum sem framleiðir leikföng fyrir börn með hugmyndaauðgi og sköpun að leiðarljósi, ásamt vistvænni, lífrænni og siðgæðisvottaðri framleiðslu.

Hvert er upphafið að fafutoys? Hver er menntun ykkar og hvar fenguð þið fjármagn til að fara af stað með verkefnið?

fafu_logoHulda Hreiðarsdóttir, íslensku- og fjölmiðlafræðingur, er upphafsmanneskja Fafu, en hún hafði fengið nóg af hávaðasömum og tilgangslausum leikföngum sem skiluðu börnum hennar engu og eyðilögðust strax. Hún hófst því handa við að skapa fyrirtæki sem hefði þroska og þarfir barna að leiðarljósi við leikfangahönnunina ásamt sterkri umhverfis- og siðgæðisvitund.

Vorið 2009 bættist Þórunn Jónsdóttir í hópinn, en hún er viðskiptafræðinemi og hefur reynslu af stofnun og rekstri fyrirtækja. Að lokum kom Óðinn Bolli Björgvinsson, vöruhönnuður í teymið haustið 2009.

Fyrirtækið var formlega stofnað í júní 2009, en þá hafði Hulda farið í gegnum Viðskiptasmiðju Klaksins með hugmyndina og var það ómetanleg reynsla. Sótt var um styrk til Rannís, Átaks til atvinnusköpunar og Starfsorku og hefur þannig tekist að fjármagna framleiðslu og rekstur fyrirtækisins hingað til. Nú er unnið að því að gera fyrirtækið sjálfbært svo ekki þurfi að treysta á styrki til að halda starfseminni áfram.

Hvers vegna þessi boðskapur og hvers vegna teljið þið mikilvægt að vinna eftir ákveðnum gildum og markmiðum? Geta/ættu smærri framleiðendur að skapa gildi/viðhorf til að vinna eftir?

fafu01Við teljum að boðskapur og gildi fyrirtækja séu grunnforsenda viðskipta. Við stofnuðum fyrirtæki til að við gætum skapað leikföng sem nýtast börnum á einhvern hátt til að þroska félagsfærni sína og efla sjálfstraust sitt og skilning á tilverunni. Auðvitað er ekki hægt að reka fyrirtæki nema það skili einhverjum hagnaði, en boðskapurinn verður alltaf að vera númer eitt til að fyrirtæki geti byggt upp traust og trúverðugleika í hugum fólks.

Nú er fyrirtækið íslenskt en hvað fer fram á Íslandi? Hvers vegna er varan ekki framleidd á Íslandi? hvað þarf að breytast til að svo sé eða er það etv. ekki raunhæft ?

Fyrsta vörulínan okkar er fjölnota búningalína sem unnin er úr lífrænni bómull, silki og þæfðri ull. Vöruþróun, hönnun, markaðssetning og fyrirtækið sjálft er rekið á Íslandi. Ástæða þess að við framleiðum þessar vörur ekki Íslandi er sú að fataiðnaðurinn hér á landi er hreinlega ekki samkeppnishæfur við framleiðendur okkar og þá helst hvað varðar launakostnað, sérhæfingu, tækjabúnað og flutningskostnað. Þá horfum við líka mikið til umhverfissjónarmiða en við leitumst við að láta framleiða vörurnar þar sem hráefnið er. Þannig að í staðinn fyrir að kaupa bómullina á Indlandi, láta flytja hana til Íslands til að sauma úr og flytja hana svo aftur út, þá erum við með þessu að skapa okkur tækifæri til að framleiða allt á sama svæðinu og senda svo beint til þeirra landa sem við seljum vörurnar okkar til. Þannig spörum við auðlindir okkar og höfum minni neikvæð áhrif á umhverfi okkar en ella.

Margir hafa komið að máli við okkur og spurt hvers vegna við látum ekki framleiða ullarvörurnar á Íslandi. Þar kemur aftur inn í þetta kostnaður, sérhæfing og stefna okkar. Við ákváðum að nota siðgæðisvottaða framleiðendur og leggja þannig okkar af mörkum til framfara í þróunarlöndunum. Þá er ullin mun ódýrari í Nepal, þar sem við látum framleiða hana og að auki eru framleiðendur okkar þar með ákveðna sérhæfingu í vinnsluaðferðum sem erfitt er að finna á Íslandi. Þó að íslenska ullin sé góð og mikið sé til af þróuðum framleiðsluaðferðum hér, þá hentar það hreinlega ekki okkar stefnu eða vöru.

Hvað núverandi vörulínu okkar snertir þá teljum við ekki raunhæft að hún verði fullunnin á Íslandi í framtíðinni. Hins vegar erum við opin fyrir því að láta framleiða einstakar vörur hér og höfum til dæmis verið að skoða endurunnið plast í því samhengi. Þær hugmyndir eru þó enn á teikniborðinu og ekki víst að þær komi til framkvæmda í allra nánustu framtíð.

Hvernig komust þið í samband við framleiðendur erlendis og hvernig virkar framleiðsluferlið svo fjarri landinu? Eru einhverjir hnökrar sem ber að varast?

Við höfum fundið framleiðendurna okkar eftir ýmsum krókaleiðum en þar spilaði Google leitarvélin stórt hlutverk. Sem dæmi þá fundum við bómullarframleiðandann okkar í gegnum hollenskt fyrirtæki sem við fundum í gegnum bandarískan bolaframleiðanda sem við fundum í gegnum Google.

Framleiðsluferlið hefur gengið upp og niður. Tungumálaörðugleikar, fjarlægð, menningarmunur og endalausar indverskar hátíðir og frídagar hafa gert það að verkum að allt tók mun lengri tíma en áætlað hafði verið. En í dag erum við að fínpússa samskiptin og boðleiðirnar og allt er að komast í réttar skorður.

Það sem helst ber að varast í samskiptum við erlenda framleiðendur og þá sérstaklega þá sem eru í mjög fjarlægum löndum er að gera aldrei ráð fyrir að þeir skilji allt eins og við skiljum það, gera ráð fyrir að ferlið muni taka þrisvar sinnum lengri tíma en áætlað er í upphafi og passa að stökkva aldrei á fyrsta framleiðandann.

Hver eru næstu skref hjá fyrirtækinu og hvernig sjáið þið fyrir ykkur framtíðina, næstu 10 ár?

Þessa dagana erum við að vinna í að finna umboðsmenn og dreifingaraðila fyrir vörur okkar erlendis. Skandinavía, Þýskaland, Bretland, Holland og Bandaríkin eru okkar helstu markaðir, en við gætum okkur þó á því að taka eitt skref í einu og reyna ekki að sigra heiminn á einni nóttu.

Okkar markmið fyrir næstu 10 ár eru að framleiða leikföng sem uppfylla strangar gæða- og umhverfiskröfur, byggja upp góðar dreifileiðir og birgjasambönd og umfram allt, hafa gaman af því sem við erum að gera!

Tenglar: www.fafutoys.com
Fafutoys á Facebook
Fafutoys á Twitter

Umfjöllun í Sjónvarpi mbl.is

  1. No comments yet.
(will not be published)
  1. No trackbacks yet.